Móavellir 2, 260 Njarðvík
38.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
48 m2
38.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
27.800.000
Fasteignamat
33.050.000

Valhöll fasteignasala kynnir: Móavellir 2, 260 Reykjanesbæ, íbúð merkt 103. Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngangi og sérafnotaflöt í góðu 27 íbúða fjölbýlishúsi. Frábær staðsetning miðsvæðis á Nesvallarsvæðinu í Reykjanesbæ. Göngufæri í helstu þjónustur m.a íþróttahús, leikskóla, verslunarkjarna, líkamsrækt og fleira. 

ATH: eignin er seld með fyrirvara 


Frekari upplýsinga veita Sara Margrét Sigurðardóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 8220876 eða [email protected] 
og Óskar fasteignasali / lögmaður. í síma 691-1931 eða [email protected]

Nánari lýsing eignar:
Forstofa: langur gangur með parket á gólfi og virkilega góðum og stórum fataskápum.
Stofa/borðstofa: parket á gólfi, stór gluggi sem vísar til suðurs. Útgengt út á sérafnotaflöt sem nær 2 metra frá hús og meðfram íbúðinni.
Eldhús. grá L-laga eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum. Innbyggð uppþvottavél, ofn og helluborð frá Electrolux.
Baðherbergi: flísalagt, með hvítri innréttingu, sturtuklefa og upphengdu klósetti. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi: parket á gólfi, fataskáp og opnanlegan glugga sem vísar til norðurs.
Sameiginleg vagna og hjólageymsla á fyrstu hæð. 

Nánari upplýsingar veitir:
Frekari upplýsinga veita Sara Margrét Sigurðardóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 8220876 eða [email protected] 
og Óskar fasteignasali / lögmaður. í síma 691-1931 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;