Álalind 6, 201 Kópavogur
89.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
113 m2
89.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2019
Brunabótamat
65.200.000
Fasteignamat
82.600.000

Valhöll fasteignasala kynnir fallega fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi að Álalind 6 í Kópavogi. Íbúðinni fylgir stæði í upphitaðri bílageymslu og tvennar svalir.

Eignin er skráð 113 fm á stærð og skiptist í 103,4 fm íbúð og 9,6 fm geymslu.

"Seljendur eru opnir fyrir makaskiptum á þriggja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu í sama hverfi"

Íbúðin skiptist í eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu í kjallara.  


Þetta vel skipulögð og falleg íbúð í lyftuhúsi byggðu árið 2019 sem vert er að skoða.

Nánari lýsing:
Anddyri / gangur: með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús: með fallegri innréttingu frá GKS, eyju með spanhelluborði og háf yfir, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakara- og örbylgjuofn í vinnuhæð og parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa: í opnu rými með eldhúsinu með parketi á gólfi og útgengi á suður svalir.
Baðherbergi: með innréttingu og skáp, baðkari, handklæðaofni, upphengdu salerni og flísum á gólfi og veggjum. 
Þvottahús: inn af baðherbergi með vinnuborði með vask og flísum á gólfi. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: með fataskápum og parketi á gólfi og útgengi á norður svalir.
Tvö barnaherbergi: bæði með fataskápum og parketi á gólfi.
Geymsla: 9,6 fm sér geymsla í kjallara.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg í kjallara.
Stæði í bílageymslu: sér stæði í bílageymslu.

Hverfið:
Álalind er í nýlegu hverfi sem nefnist Glaðheimar og fékk gatan verðlaun sem gata ársins árið 2022 sem veitt var af umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogs þar segir m.a. " Gatan einkennist af snyrtilegum og vel hirtum lóðum, litríkum og fjölbreyttum akritektúr og skemmtilegum almenningssvæðum."  

Nánari upplýsinga veitir:
Snorri Björn Sturluson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 699 4407 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Google tag: ;